Námskeið verður haldið um aðferð Kyrrðarbænarinnar (Centering Prayer) í Selfosskirkju, Laugardagana 2. og 9. febrúar kl. 10:30 – 13:30 Þátttökugjald á námskeiðið fyrir báða dagana er kr. 2.000,- Í framhaldi verður boðið upp á sex fræðslukvöld þar sem farið verður dýpra í einstaka þætti sem kenndir voru á námskeiðinu. Kvöldin einkennast af iðkun bænarinnar, fræðslu og umræðum. Fræðslukvöldin hefjast mánudaginn 11. febrúar kl. 20:00 – 22:00 og þeim lýkur mánudaginn 18. mars á sama tíma, alls sex mánudagar. Þau sem áður hafa sótt námskeið í Kyrrðarbænininni og/eða iðkað hana eru hjartanlega velkomin á fræðslukvöldin sex.
Umsjón er í höndum Margrétar Guðjónsdóttur, Margretar Scheving og Þorvaldar Halldórssonar. Skráning er í höndum Margretar Scheving í síma 699 5709 eða á netfanginu margretscheving@simnet.is