Kyrrðarstund verður á aðventu í Mosfellskirkju
Íhugun – kyrrð – útivera – Í fallegu umhverfi og kirkju í dal skáldanna, Mosfellsdal.
Laugardaginn 7 og 14. desember kl. 9-11
Við hefjum stundina í morgunrökkrinu með kristinni íhugun. Göngum síðan út í birtu dagsins og tökum stuttan göngutúr í dalnum. Heitt kakó í lok samveru.
Umsjón: Arndís, Ragnheiður og Sigurbjörg. Allir velkomnir