Hafin er snemmskráning fyrir kyrrðardaga í Skálholti vorið 2021.
Fimmta árið í röð bjóða Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi uppá kyrrðardaga í Skálholti, vikudvöl eða langa helgi þar sem lögð er áhersla á iðkun Kyrrðarbænarinnar, Jóga, Jóga Nidra djúpslökun, fræðslu, hvíld og/eða útiveru. Æskilegt er að hafa þekkingu á iðkun Kyrrðarbænarnnar (sjá www.kyrrarbaen.is). Áhrifin af Kyrrðarbæninni, jógaæfingum, djúpslökun, fræðslu, útiveru og hvíld í Skálholti leggjast á eitt að skapa einstaka dvöl fyrir líkama, sál og anda. Hámarksfjöldi 15 – 20 manns með fyrirvara um breytingu á sóttvarnarlögum.
Annars vegar er hægt að velja vikudvöl sem hefst fimmtudaginn 22. apríl kl. 17:30 og lýkur miðvikudaginn 28. apríl kl. 14:00 eða langa helgi sem hefst fimmtudagin 22. apríl kl. 17:30 og lýkur sunnudaginn 25. apríl kl. 14:00.
Verð: Vikudvöl: kr. 85.000. Löng helgi: kr. 47.500. Eftir 1. mars 2021 hækkar verðið um 5%.
Innifalið í verðinu er m.a. einstaklingsherbergi með sér baði og fullu fæði.
Hægt er að sækja um styrk í sumum starfsmenntasjóðum stéttarfélaga.
Verð: Vikudvöl: kr. 85.000. Löng helgi: kr. 47.500. Eftir 1. mars 2021 hækkar verðið um 5%.
Innifalið í verðinu er m.a. einstaklingsherbergi með sér baði og fullu fæði.
Hægt er að sækja um styrk í sumum starfsmenntasjóðum stéttarfélaga.
Umsjón: Sr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn, Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, leiðbeinendur Kyrrðarbænarinnar. Jógakennari auglýstur síðar.
Skáning fer fram á heimasíðu Skálholts www.skalholt.is. Leiðsögn við skráningu í síma 486-8870 (Sigurbjörg).
Nánari upplýsingar varðandi kyrrðardagana er hjá Arndísi í síma 866-8947 eða á netf.: arndis.linn@lagafellskirkja.is eða Sigurbjörgu í síma 861-0361 eða á netf.: sigurth@simnet.is