Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi ásamt Grensáskirkju bjóða upp á námskeið um Kyrrðarbæn laugardaginn 2. september 2023 kl. 10-15 í Grensáskirkju.
Kyrrðarbæn er íhugunaraðferð úr kristinni hefð sem hefur verið stunduð í einhverri mynd alveg frá frumkristni. Á námskeiðinu verður fjallað um þessa íhugunaraðferð, hún kennd og iðkuð.
Kyrrðarbæn er afar einföld iðkun sem fer fram í þögn og gengur út á að hvíla í nærveru Guðs og samþykkja verk heilags anda innra með okkur. Þótt aðferðin sé einföld hefur hún umbreytandi áhrif á iðkandann með auknum andlegum þroska sem leiðir m.a. til aukinnar sjálfsþekkingar og dýpra sambands við Guð og menn.
Kennarar námskeiðsins eru sr. María G. Ágústsdóttir, prestur í Grensáskirkju, sr. Bára Friðriksdóttur og Ingunn Björnsdóttir, sálgætir og nemandi í andlegri leiðsögn. María, Bára og Ingunn eru með kennsluréttindi í Kyrrðarbæn og hafa ástundað hana um langt árabil.
Verð: 4.000 kr. Innifalið er léttur hádegismatur og námsgögn.
Skráning: https://kyrrdarbaen.skramur.is/input.php?id=17
Nokkrum dögum fyrir námskeiðið fá þátttakendur kröfu í heimabankann sinn fyrir námskeiðsgjaldinu.
Ef spurningar vakna má senda tölvupóst á Ingunni: ingunnbjornsdottir@simnet.is.