Íhugunarkapellan á netinu er hafin á ný eftir sumarfrí. Íhugunarkapellan fer fram á Zoom þar sem við eigum samfélag um bæn og íhugun. Bænaaðferðirnar Kyrrðarbæna, Biblíuleg íhugun eru iðkaðar og einstaka sinnum Fagnaðarbæn einnig. Umfjöllun um þessar bænaaðferðir má finna á heimasíðu Kyrrðarbænasamtakanna.

Við verðum á hverjum mánudegi og þriðjudegi kl. 17:30 og öll eru hjartanlega velkomin!

Hér er hlekkurinn en hann má einnig finna á forsíðu heimasíðunnar:

https://us02web.zoom.us/j/88488901253?pwd=4kDRQ1ESG1iuuSDcFXJ5ymxwl7cpif.1