Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi ásamt Njarðvíkursókn bjóða upp á námskeið um Kyrrðarbæn laugardaginn 21. september 2024 kl. 10-15 í Ytri Njarðvíkurkirkju.

Kyrrðarbæn er íhugunaraðferð úr kristinni hefð sem hefur verið stunduð í einhverri mynd alveg frá frumkristni. Á námskeiðinu verður fjallað um þessa íhugunaraðferð, hún kennd og iðkuð.

Kyrrðarbæn er afar einföld iðkun sem fer fram í þögn og gengur út á að hvíla í nærveru Guðs og samþykkja verk heilags anda hið innra. Þótt aðferðin sé einföld hefur hún umbreytandi áhrif á iðkandann með auknum andlegum þroska sem leiðir m.a. til aukinnar sjálfsþekkingar og dýpra sambands við Guð og menn.

Kennarar námskeiðsins eru Regína Rósa Harðardóttir, leikskólakennari og Ruth Guðmundsdóttir GIS sérfræðingur. Regína Rósa og Ruth eru með kennsluréttindi í Kyrrðarbæn og hafa ástundað hana um langt árabil.

Verð: 4.500 kr. Innifalið er léttur hádegismatur og námsgögn.

Skráning: https://kyrrdarbaen.skramur.is/input.php?id=16 eða með því að senda póst á reginarosahardardottir@gmail.com.

Nokkrum dögum fyrir námskeiðið fá þátttakendur kröfu í heimabankann sinn fyrir námskeiðsgjaldinu.

Í kjölfar námskeiðsins verður stofnaður Kyrrðarbænahópur í Ytri Njarðvíkurkirkju fyrir þau sem áhuga hafa.

Nánari upplýsingar: reginarosahardardottir@gmail.com