Nú í haust ætla Kyrrðarbænasamtökin að bjóða upp á Kyrrðardaga í borg. Kyrrðardögum í borg er ætlað að virka sem stuðningur og þjálfun í að rækta kyrrð og bæn í amstri hversdagsins. Er þar iðkun Kyrrðarbænar, kristilegrar íhugunar í forgrunni. Íhugunariðkunin byrjar á fimmtudagseftirmiðdegi, nær hápunkti sínum á laugardeginum og svo lýkur Kyrrðardögunum með messu á sunnudeginum. Kyrrðardagar í borg eru auðsóttari þeim sem lifa uppteknu fjölskyldulífi og kosta þar að auki mun minna fyrir þátttakendur. Áætlaða dagskrá Kyrrðardaga í borg má finna hér að neðan sem og fleiri upplýsingar. Dagsetning: 22., 23. 24 og 25. október 2015.
Staðsetning: Guðríðarkirkja
Umsjónarmenn: Nokkrir
Þátttökukostnaður: 3000 krónur. (Innifalið er morgunkaffi og hádegismatur á laugardegi)
Skráning: á netfangiinu: coiceland@gmail.com
Áætluð dagskrá:
Fimmtudagur, 22. október
Fimmtudagur eftir vinnu: Guðríðarkirkja 17.30-18.30 2X íhugunarstundir
Föstudagur, 23. október
Föstudagur um morguninn Guðríðarkirkja 07.15 – 7.45 1X íhugunarstund
Föstudagur eftir vinnu – Guðríðarkirkja 17.30 – 18.30 2x íhugunarstundir
Laugardagur 24. október
Laugardagsmorgun – Guðríðarkirkja 08.30 -9.30 2X íhugunarstundir
Laugardagsmorgun – Guðríðarkirkja 9.30-10.00 Morgunkaffi í þögn
Laugardagsmorgun – Guðríðarkirkja 10.00 Morgunganga eða lestur í þögn
Laugardagsmorgun – Guðríðarkirkja 10.45-11.45 2X íhugunarstundir
Laugardagur – Guðríðarkirkja 12.00 hádegisverður
Laugardagur – Guðríðarkirkja 13.00 – 14.00 kyrrðarbæn+ Lectio Divina
Laugardagur 14.00. Umræður
Sunnudagur:
Sunnudagur – Guðríðarkirkja 09.30-10.30 2X íhugunarstundir
Sunnudagur – Guðríðarkirkja 10.30 Kaffi
Sunnudagur – Guðríðarkirkja 11.00 Messa í Guðríðarkirkju