- “Gríptu daginn” – Íhugun – kyrrð – útivera. Kyrrðardagar í Mosfellskirkju verða á aðventunni laugardagana 4. og 11. desember 2021
Á þessum laugardögum verður dagskrá frá 9:00 til 12:00 í og við Mosfellskirkju
Á kyrrðardeginum förum við í hvarf og tökum okkur hlé frá daglegri önn.
Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi, vinda ofan af og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Uppbygging er þannig að byrjað er á íhugun að hætti Kyrrðarbænarinnar, þá er gengið um í dalnum og að lokum er samverustund í kirkjunni.
Umsjón með deginum hafa prestar safnaðarins og veita þær gjarnan upplýsingar í síma 5667113 á skrifstofu frá 9 -13. Ekkert gjald er tekið fyrir Kyrrðardaga og eru allir sem áhuga hafa velkomnir.