Næstkomandi þriðjudag 20. ágúst kl. 19:30 – 22:00 stendur til boða fræðsla og umræða um Fagnaðarbæn (Welcoming Prayer) í Guðríðarkirkju. Fræðslan er haldin til að fara yfir efni og iðka bænina „Welcoming prayer“ í framhaldi af „fjarkennslunni“ sem hleypt var af stokkunum 5. ágúst sl af Contemplative Outreach Ltd. www.contemplativeoutreach.org
Þátttaka í „fjarkennslunni“ er ekki skilyrði fyrir þátttöku á þessu kvöldi og því eru þau sem áhuga hafa á að kynna sér bænina einnig velkomin.
Vinsamlega skráið þátttöku á netf: coiceland@gmail.com