Lifandi logi
– námskeið til uppbyggingar á trúargöngunni
Í þessu einstaka námskeiði fyrir Kyrrðarbænariðkendur er boðið upp á sjö daga þar sem andlegu málin eru brotin til mergjar. Námskeiðið fer fram á tímabilinu september 2020 – apríl 2021 og er leitt af þar til bærum leiðbeinendum frá Contemplative Outreach.
Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi standa fyrir námskeiðinu í samstarfi við Living Flame hjá Contemplative Outreach og Fræðslusvið Biskupsstofu. Fyrirlestrarnir fara fram á ensku en umræður í hópum og stór hluti af námsgögnum verða á íslensku. Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundabúnaðinn Zoom.
Námskeiðið er ein heild og þátttakendur mæta sjö laugardaga (september – apríl) frá kl. 12:00 – 17.10. Námgögn, upplýsingar ásamt leiðbeiningum um Zoom
Dagsetningar og umfjöllunarefni
26. sept. Að dýpka Kyrrðarbænariðkunina – Marilyn Webb
- Bænarorðið (orð, andardráttur, helgimynd).
- Upphaf og lok Kyrrðarbænarstundar.
- Lifandi bænasetning.
24. okt. Biblíuleg íhugun (Lectio Divina) – Mike Potter
- Þessi bænaaðferð, sem er í fjórum skrefum, er gaumgæfð og prófuð.
- Aðferð skólaspekinnar – formföst bæn.
- Að byggja upp tengsl.
21. nóv. Ástand mannsins (The Human Condition) – Rickey Cotton
- Það sem einkennir ástand mannsins í heiminum er skoðað.
- Dæmi um fölsk sjálf andstætt hinu sanna sjálfi.
- Afbygging hamingjuforritanna.
30. jan. Sálfræðimeðferð Guðs – Jenny Adamson
- Að skilja hringstigann (spíralinn).
- Heilunarferlið sem Kyrrðarbænin vekur.
27. feb. Hin myrka nótt sálarinnar: Nótt skynhrifanna – Susan Komis
- Biblíuleg eyðimerkurreynsla.
- Umskipti á andlegu vegferðinni og dýpkandi samband við Guð.
- Sígild tákn og freistingar í Nótt skynhrifanna.
13. mars Fagnaðarbænin – Jim McElroy
- Að samþykkja líðandi stund.
- „Að láta af en leyfa Guði“ í hversdeginum.
- Að hlusta á visku líkamans.
- Að taka allri reynslu opnum örmum og umfaðma þanning nærveru Guðs hið innra.
17. apríl Greining – Maureen Hanley
- Mismunandi stig greiningar.
- Okkar vilji/Guðs vilji.
- Algengar hindranir.